Atvinnukaffivélar

Rocket Espresso atvinnuvélar

Kaffivél sem heldur takti þegar þjónustan er í gangi

Fyrir kaffihús, veitingastaði, hótel og vinnustaði þar sem kaffið þarf að vera gott allan daginn. Við hjálpum þér að velja vél, kvörn, kaffi, vatnslausn og viðhald sem virkar saman í raunverulegum rekstri.

Rétt stærðVél valin eftir bollafjölda, hraða, rými og þjónustustíl.
Rétt uppsetningKvörn, vatn, kaffi og vinnuflæði stillt saman frá byrjun.
Rétt eftirfylgniViðhald, hreinsiverklag og stillingar þegar notkunin breytist.
Rocket Espresso vél í notkun
AtvinnulausnVél, kvörn, kaffi, uppsetning og þjónusta sem þarf að ganga alla daga.
Rocket Espresso vél í stillingu og þjónustu

Áður en vél er valin

Við byrjum á rekstrinum, ekki vörulistanum

Góð atvinnukaffivél þarf að passa við plássið, fólkið sem notar vélina, álagið yfir daginn og væntingarnar sem gestir hafa til kaffisins. Þess vegna skoðum við rými, vatn, fjölda bolla, starfsfólk og þjónustustíl áður en við mælum með vél.

Stundum er nett single-group vél rétta svarið. Stundum þarf stærri vél, meiri gufukraft, aðra kvörn eða skýrara viðhaldsplan. Markmiðið er alltaf það sama: stöðugur bolli og einfaldari daglegur rekstur.

Veldu leið eftir rekstri

Boxer Tank eða Boxer fyrir nettari lausn. Boxer Evo þegar álagið er meira

Við gerum ekki atvinnuvélar að venjulegri checkout-vöru. Rétt uppsetning, kvörn, vatn, kaffi og þjónusta skipta jafn miklu máli og vélin sjálf.

Rocket Boxer Tank atvinnukaffivél

Boxer Tank / Boxer

Nett commercial lausn fyrir minni rými

Fyrir hótelbar, morgunverð, vinnustað, minni kaffibar eða staði sem vilja alvöru espresso-lausn án þess að fara beint í stóra tveggja hópa vél.

1 group3L vatnstankur5L boilervatnstankur eða föst tenging
  • Boxer Tank hentar þegar vatnstenging er ekki sjálfgefin eða lausnin þarf að vera sveigjanleg.
  • Boxer hentar vel sem föst uppsetning í nettari þjónusturýmum.
  • Valin með réttri kvörn, vatnslausn, kaffi og hreinsiverklagi.
Rocket Boxer Evo framhlið með shot timer og stáltökkum

Rocket Boxer Evo

Þegar hraði, endurtekning og einfaldleiki skipta máli

Boxer Evo er næsta skref fyrir staði sem þurfa meiri afköst og meiri stjórn í daglegri espresso-þjónustu. Hún er fáanleg sem 2 eða 3 group vél og bætir við eiginleikum sem hjálpa baristum að vinna skýrt og stöðugt þegar álagið eykst.

  • Shot timer fyrir betri yfirsýn yfir útdrátt og stillingar.
  • Ryðfríir stáltakkar fyrir endingargóða og nákvæma stjórnun.
  • Meiri stjórn á vinnuflæði fyrir staði með marga bolla yfir daginn.
  • Jet Steam sem valmöguleiki fyrir Boxer Evo 2 og 3 group vélar.

Jet Steam

Mjólkurvinnan verður stöðugri

Jet Steam er valkvæð gufustöng fyrir Boxer Evo 2 og 3 group vélar. Hún bætir mjólkurstýringu við Rocket-línuna með innbyggðum skjá í framhlið vélarinnar, þannig að baristar geta unnið með nákvæmari stjórn á gufu, áferð og hitastigi.

Jet Steam skjár á Rocket Boxer Evo
Sérstillanlegur gufuþrýstingur

Forstillingar eða persónulegar stillingar fyrir rétta mjólkuráferð.

Sjálfvirk froða

Stöðug silkimjúk áferð og hitastig, sérstaklega þegar álagið er mikið.

Skýr stjórn í framhlið

Innbyggður skjár gerir gufustillingar einfaldari í daglegri notkun.

Auðveld þrif

Laus stútur og purge function hjálpa til við einfalt viðhald.

Rocket commercial línan

Við veljum vél út frá því hvernig staðurinn vinnur

Stærsta vélin er ekki alltaf besta vélin. Rétta vélin er sú sem heldur gæðum stöðugum þegar þjónustan er í gangi.

Rocket Boxer

Föst uppsetning

Rocket Boxer

Compact atvinnuvél fyrir staði sem vilja fasta uppsetningu og stöðuga espresso-þjónustu í nettari stærð.

Rocket Boxer Tank

Sveigjanlegt vatn

Rocket Boxer Tank

Single-group vél með vatnstanki eða vatnstengingu fyrir minni rými, hótelbar, vinnustaði og tímabundnar lausnir.

Rocket Boxer Evo

Meira álag

Rocket Boxer Evo

Fyrir rekstur sem þarf meiri stjórn, meiri getu og einfaldari mjólkurvinnu með Jet Steam valmöguleika.

Þjónustan í kring

Vélin þarf að vera hluti af kerfi

Það sem heldur kaffinu stöðugu er samspil vélar, kvarnar, kaffis, vatns og daglegs verklags. Við hjálpum þér að setja þetta upp þannig að starfsfólk geti haldið gæðunum án þess að kaffið verði flókið verkefni.

1. Metum þörfina

Bollafjöldi, þjónustuhraði, starfsfólk, vatn, pláss og væntingar gesta.

2. Veljum búnað

Vél, kvörn, kaffi, fylgihlutir og hreinsivörur valin sem ein lausn.

3. Setjum upp og stillum

Uppsetning, kvörnstillingar, uppskrift og grunnþjálfun fyrir daglega notkun.

4. Fylgjum eftir

Viðhald, bilanagreining, hreinsirútína og ráðgjöf þegar notkunin breytist.

Viðhald og rekstraröryggi

Þjónustan skiptir jafn miklu máli og vélin

Við viljum að vélin sé einföld í daglegri notkun og að litlir hlutir verði ekki að stórum vandamálum á miðri vakt.

Kvörn og uppskrift

Við stillum mölun, skammt og útdrátt þannig að kaffið virki í raunverulegri þjónustu.

Vatn og hreinsun

Vatnssía, kalk, dagleg hreinsun og Cafetto vörur eru hluti af rekstrarörygginu.

Viðhald og bilanagreining

Við hjálpum til áður en smávandamál verða að stoppi í miðri þjónustu.

Eftirfylgni

Þegar notkun breytist, starfsfólk skiptist eða kaffið breytist, stillum við með þér.

Fyrir hvaða staði?

Fyrir rekstur þar sem góður bolli skiptir máli

Kaffihús og barir

Fyrir daglega þjónustu þar sem vél og kvörn þurfa að halda takti með starfsfólki og gestum.

Veitingastaðir

Fyrir góða espresso-þjónustu eftir mat, á bar eða í minni kaffistöð.

Hótel og gististaðir

Fyrir morgunverð, lobby, fundarrými, bar eða þjónustu sem þarf að vera stöðug.

Vinnustaðir

Fyrir skrifstofur sem vilja betri kaffilausn með ráðgjöf, uppsetningu og þjónustu.

Byrjum á samtali

Ertu að opna, uppfæra eða laga kaffilausn?

Sendu okkur nokkrar línur um rýmið, áætlaðan bollafjölda og hvernig þjónustan á að ganga fyrir sig. Við svörum sjálf og bendum á næsta skref.