Endurgreiðsluskilmálar
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar. Að ofangreindum skilyrðum uppfylltum og eftir að varan er móttekin, er gengið frá endurgreiðslu. Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur og kaupandi greiðir sendingargjald þegar vöru er skilað. Ef pakki er ekki sóttur á pósthús áskilja Baunir ehf. sér rétt til að halda eftir kostnaði við sendingar.