Almennir skilmálar
GREIÐSLA
Kaupandi getur innt greiðslu af hendi með kreditkorti eða debetkorti. Kortafærslur fara í gegnum örugga greiðslusíðu Valitor.
AFHENDING VÖRU
Allar pantanir eru settar í útkeyrslu innan 24 tíma frá pöntun.
Íslandspósturinn sér um dreifingu sendinga utan Höfuðborgarsvæðisins. Þá er einnig mögulegt að sækja allar pantanir á skrifstofu okkar að Melhaga 22, 107 Reykjavík.
Sendingarkostnaður er frír ef andvirði pöntunar er umfram 15 þúsund krónur. Fyrir ódýrari sendingar er rukkað sanngjarnt sendingargjald.
Kaupandi ber sjálfur ábyrgð á að gefa upp rétt póstfang og að tryggja að merkingar við póstkassa eða lúgur séu fullnægjandi. Ef vara er ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma eða endurgreiða vöruna.
VÖRUSKIL
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar. Að ofangreindum skilyrðum uppfylltum og eftir að varan er móttekin, er gengið frá endurgreiðslu. Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur og kaupandi greiðir sendingargjald þegar vöru er skilað. Ef pakki er ekki sóttur á pósthús áskilja Baunir ehf. sér rétt til að halda eftir kostnaði við sendingar.
VÖRUVERÐ
Öll vöruverð eru birt með fyrirvara um prentvillur og áskilja Baunir ehf. sér rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp.
Vinsamlega athugið að vöruverð getur breyst án fyrirvara. Öll verð eru gefin upp með virðisaukaskatti.
TRÚNAÐUR
Baunir ehf. heita kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Frekari upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga og vafrakökur finnið þið undir síðunni – persónuverndarskilmálar.
ÁBYRGÐ
Baunir ehf. ábyrgjast framleiðslugalla á seldum vörum í 2 ár frá afhendingardegi. Reikningur frá Baunum ehf. gildir sem ábyrgðarskírteini og telst vara ekki í ábyrgð hjá Baunum ehf. nema gegn framvísun ábyrgðarskírteinis.
Ef Baunir ehf. fá tilkynningu um galla á ábyrgðartímabilinu munu Baunir ehf. svo fljótt sem auðið er, annað hvort lagfæra vörunna eða skipta henni út. Kaupandi ber sjálfur byrgð á því að koma vöru á viðgerðarstað eða verkstæði.
Ábyrgð fellur niður ef:
- Leiðbeiningum framleiðanda búnaðar um hirðu, notkun, álag, íhluti eða viðhald er ekki fylgt.
- Ef rekja má bilun til illrar eða rangrar meðferðar
- Ef rekja má bilun til atburða sem framleiðanda eða seljanda verður ekki kennt um, svo sem bilana sem stafa af flutningi, rangri meðferð eða misnotkun, slælegu viðhaldi, slysni eða óhöppum, náttúruhamförum, truflunum á rafkerfi hússins eða veitunnar, o.s.frv.
- Óviðkomandi aðili hefur opnað eða átt við búnað, breytt honum eða bætt við hann á einhvern hátt.
- Tækið hefur verið tengt við ranga spennu eða straumtegund.
- Verksmiðjunúmer og eða innsigli hefur verið fjarlægt eða rofið.
Baunir ehf. áskilja sér rétt til að sannreyna að galli eða bilun heyri undir ábyrgðarskilmála, þó innan eðlilegra tímamarka.
Skilyrði fyrir ábyrgðinni eru almenns eðlis, svo sem að galli sé tilkynntur strax og hans kann að verða vart og að ekki hafi neitt verið átt við tækið af aðilum óviðkomandi seljanda, nema í samráði við hann.
ENDURVINNSLA
Baunum ehf. er annt um endurvinnslu á öllum sínum vörum. Sem innflytjandi á raftækjum borga Baunir ehf. svokallað úrvinnslugjald sem nær yfir kostnað við endurvinnslu á vélum og umbúðum. Vélin er 100% endurvinnanleg, þar á meðal umbúðirnar. Ekkert plast heldur einungis umhverfisvæn endurvinnanleg efni.
LÖG OG VARNARÞING
Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur Baunum ehf. á grundvelli ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur.
ANNAÐ
Með því að skrá þig á póstlista Bauna ehf. samþykkir þú að fá sendar upplýsingar um nýjar vörur og tilboð. Netföngin eru trúnaðarupplýsingar og eru undir engum kringumstæðum afhent þriðja aðila. Óski viðskiptavinur eftir að vera tekinn af póstlista skal fylgja leiðbeiningunum neðst í tölvupóst sendingum eða senda tölvupóst baunir@baunir.is
Baunir ehf. áskilja sér rétt til að breyta skilmálum þessum hvenær sem er.